Fótbolti

Real minnkaði forystu Barcelona í sex stig

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Arjen Robben fagnar marki sínu í dag.
Arjen Robben fagnar marki sínu í dag. Mynd/Getty Images

Real Madrid vann nokkuð öruggan sigur á Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Liðið er þar með aðeins sex stigum frá Barcelona í baráttunni um titilinn á Spáni.

Real vann leikinn 2-0 en hefur oft spilað betur. Valladolid fékk besta færi fyrri hálfleiks þegar þeir skölluðu framhjá úr algjöru dauðafæri.

Gulldrengurinn Raúl kom Real yfir eftir 44. mínútur og Arjen Robben innsiglaði sigurinn á 82. mínútu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×