Fótbolti

Bojan ánægður hjá Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bojan Krkic í leik með Barcelona.
Bojan Krkic í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Bojan Krkic segist vera ánægður hjá Barcelona og vilji ekki fara frá félaginu þó svo að hann sé ekki með fast sæti í byrjunarliðinu.

Bojan skoraði bæði mörk Barcelona í 2-0 sigri liðsins á Almeria í gær en hann hefur aðeins byrjað í tíu leikjum með Barcelona í öllum keppnum á tímabilinu. Hann fékk fleiri tækifæri á síðustu leiktíð er liðið var undir stjórn Frank Rijkaard.

„Ég hélt að ég fengi fleiri mínútur og væri oftar í liðinu en svona hefur þetta þróast og ég er ekki óánægður," sagði Bojan í samtali við spænska fjölmiðla.

„Ég er rólegur vegna þess að ég hef haldið áfram að bæta mig. Ég skil hvað það þýðir að vera hluti af svona sterku liði. Það er erfitt að fá að spila þegar að Messi, Henry og Eto'o - þrír af bestu leikmönnum heimsins - eru inn á vellinum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×