Fótbolti

Krkic vill feta í fótspor Messi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Krkic og Messi.
Krkic og Messi. Nordic Photos/Getty Images

Hinn ungi og bráefnilegi framherji Barcelona, Bojan Krkic, tekur Lionel Messi sér til fyrirmyndar og ætlar að læra af honum svo hann geti síðar fetað í fótspor argentínska snillingsins.

Barcelona er sagt vera að íhuga að lána þennan skemmtilega 18 ára framherja frá félaginu næsta vetur en sjálfur vill hann vera áfram í Katalóníu og berjast fyrir sæti sínu í liðinu.

„Messi er besti leikmaður heims. Hann smitar frá sér mikilli jákvæðri orku og ég reyni að fylgjast með og læra. Svo er náttúrulega ótrúlegt að sjá manninn spila fótbolta," sagði Krkic fullur aðdáunar.

„Ég hef eðlilega séð hann margoft spila og það er ekki auðvelt að finna einhverja veikleika hjá honum. Hann hefur allt. Hann getur alltaf skorað en það mikilvægasta af öllu er að hann er frábær persóna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×