Sölvi Geir: Yrði stærra fyrir mig en að vinna sænska titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2009 12:00 Sölvi Geir Ottesen leikmaður SønderjyskE. Mynd/Heimasíða SønderjyskE
Sölvi Geir Ottesen og félagar í danska liðinu SønderjyskE berjast fyrir lífi sínu í lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. SønderjyskE tekur þá á móti Gunnari Heiðari Þorvaldssyni og Kára Árnasyni í liði Esbjerg og verður að ná í stig. SønderjyskE er með 27 stig fyrir lokaumferðina eða þremur stigum meira en AC Horsens sem er í fallsæti og á enn möguleika á að bjarga sér. Til þess þarf liðið að vinna OB á útivelli og treysta á það að Esbjerg vinni SønderjyskE. Sölvi Geir var í viðtali hjá danska Tips-blaðinu fyrir helgina og vakti það mikla athygli blaðsins að Sölvi fyndist það sætara að bjarga sér frá falli en það var að vinna sænska meistaratitilinn með Djurgården árið 2005. „Það yrði stærra fyrir mig að SønderjyskE nær að halda sér í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn en að vinna sænska titilinn með Djurgården. Ég upplifði mig ekki sem hluta af meistaraliðinu vegna þess að ég var meiddur og spilaði lítið. Þegar ég fagnaði titlinum með liðinu þá var ég að fagna árangri hinna leikmanna og liðsins en ekki að fagna árangri mínum," sagði Sölvi. „Nú er þetta allt annað því ég á hlut í árangri SønderjyskE og það væri því mér miklu meira virði ef við næðum að halda SønderjyskE uppi," sagði Sölvi sem var valinn í íslenska A-landsliðið í síðustu viku. Sölvi ætlar að fagna vel gangi allt upp í dag. „Við munum fagna því eins og við værum orðnir meistarar," sagði Sölvi bjartsýnn. Leikurinn hefst klukkan 15.00 að íslenskum tíma.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sjáðu sigurmark Liverpool og pínleg mistök í München Fótbolti Bergrós efst Íslendinga eftir fyrstu viku CrossFit Open Sport Dómararnir á Spáni fá miklu betur borgað Fótbolti Draumadagar Elínar Klöru sem fer í atvinnumennsku Handbolti „Keflavík reyndi að kaupa sér Íslandsmeistaratitilinn en þeir eru í tíunda sæti“ Körfubolti Einstakt mál í Frakklandi: Níu mánaða bann fyrir að ógna dómara Fótbolti „Við vorum mikið betri en Liverpool“ Fótbolti Utan vallar: Fegurðin í því að stúta og stela Fótbolti Alisson: „Líklega besti leikur lífs míns“ Fótbolti Stelpurnar okkar aftur í hæstu hæðum Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu vörslurnar hjá Alisson: „Fáir sem stugga við honum“ Utan vallar: Fegurðin í því að stúta og stela Stelpurnar okkar aftur í hæstu hæðum Sjáðu sigurmark Liverpool og pínleg mistök í München Einstakt mál í Frakklandi: Níu mánaða bann fyrir að ógna dómara „Við vorum mikið betri en Liverpool“ Dómararnir á Spáni fá miklu betur borgað Snilldarmark Ovalle þykir eiga skilið Puskas verðlaunin Alisson: „Líklega besti leikur lífs míns“ Tíu Börsungar náðu að landa sigri í Lissabon Kane á skotskónum í sigri Bæjara í einvígi þýsku liðanna Liverpool lifði af stórskotahríð í París og Elliott tryggði svo sigurinn Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Inter bætti ofan á hörmungar hollensku liðanna Ein besta knattspyrnukona heims er ófrísk Liverpool gæti mætt vængbrotnu liði í úrslitaleiknum á Wembley Oliver kældur eftir Mateta-atvikið Amorim: Man. Utd að hugsa um „stærri hluti“ en titil í vor Hálfleikssýning í anda Super Bowl í úrslitaleik HM Jusu Hákon lofi: „Hann hefur bara allt sem þjálfarar leita að“ Rikki G ærðist þegar Hákon skoraði FIFA dæmir þjálfara í lífstíðarbann fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum Ringulreið eftir að keppinautur Heimis sagði upp rétt fyrir einvígið Slot þakkar hrósið en segir Real Madrid enn best Sjáðu frábæran skalla Benonýs Breka Sjáðu sjö marka sýningu Arsenal og glæsimörk í Madrid Gamla Liverpool stjarnan grét þegar hann rifjaði upp hræðilegan tíma Hákon fyrsti Íslendingurinn í næstum því átján ár Hvetja stuðningsfólk Man. Utd til að mæta í svörtu því félagið sé „að deyja“ Hákon um markið: Hann sá mig ekki en heyrði í mér Sjá meira