Fótbolti

Sigur hjá Stabæk

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pálmi Rafn Pálmason.
Pálmi Rafn Pálmason. Mynd/Arnþór

Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Stabæk vann 3-1 sigur á Strömsgodset. Pálmi Rafn Pálmason kom inn á sem varamaður á 56. mínútu en staðan var þá 1-0 í leiknum, Stabæk í vil.

Þá gerðu Viking og Álasund 1-1 jafntefli. Indriði Sigurðsson og Birkir Bjarnason léku báðir allan leikinn fyrir Viking.

Stabæk er í þriðja sæti deildarinnar með 44 stig en Viking í því áttunda með 34 stig.

Rosenborg getur tryggt sér titilinn í kvöld ef liðið tapar ekki fyrir Molde. Leikurinn hófst klukkan 18.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×