Einar: Þetta var skársti leikurinn okkar í vetur Ómar Þorgeirsson skrifar 25. nóvember 2009 23:11 Einar Jónsson. Mynd/Vilhelm „
Þetta fer stundum svona þegar Valur og Fram eigast við. Það er svo mikill hraði í þessum liðum og þau eru rosalega dugleg að refsa að þegar vörnin smellur hjá öðru hvoru liðinu þá koma oft þrjú eða fjögur mörk í kippum. Svo snýst þetta við og þetta verður oft mjög kaflaskipt en það er bara það skemmtilega við handboltann. Maður veit aldrei hverju maður getur átt von á," sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir 21-21 jafntefli liðs síns gegn Val í N1-deild kvenna í handbolta. Einar var að vanda líflegur á hliðarlínunni. „Mér finnst smá værukærð vera búna að vera yfir mínu liði í vetur og því lét ég vel í mér heyra. Vildi aðeins öskra þær í gang og peppa þetta upp og þær brugðust ágætlega við og mér fannst þetta í raun vera skársti leikurinn hjá okkur í vetur. Ég hefði samt viljað taka bæði stigin í þessum leik en þessi frammistaða gefur fögur fyrirheit upp á framhaldið að gera," sagði Einar vongóður. Pavla Nevarilova er byrjuð að spila með Fram að nýju eftir erfið meiðsli og Einar er vitanlega gríðarlega ánægður með að endurheimta hana. „Pavla hefur ekkert getað æft sem skildi og var því orðin ansi þreytt í lok leiksins. Hún er hins vegar gríðarlega mikilvæg fyrir okkur bæði í vörn og sókn, það verður bara að segjast eins og er og það eru ekki margir leikirnir sem við höfum tapað með hana innanborðs," sagði Einar að lokum.
Olís-deild kvenna Mest lesið „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Handbolti Segja Ronaldo hafa misst af leik til að sleppa við svipuhögg Fótbolti Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Enski boltinn Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Ofurtölvan setur Liverpool á toppinn og Arsenal ofar Real Madrid Fótbolti Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti Hafnarfjörður keypti Skessuna fyrir 1.190 milljónir Fótbolti „Eins manns dauði er annars brauð“ Handbolti „Brjálæðisleg orka“ Hákonar og einstakt samband við David Fótbolti Breyttist í Messi þegar það vantaði Messi Fótbolti Fleiri fréttir Hundrað prósenta Sigvaldi í úrvalsliði Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt „Eins manns dauði er annars brauð“ „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Erlingur tekur aftur við Eyjaliðinu Hópurinn gegn Grikkjum: Nítján ára nýliði í markinu Svona var blaðamannafundur Snorra Einn sá allra besti á Íslandi samdi við sænsku meistarana Frábær leikur Andra dugði ekki til Myndasyrpa frá fögnuði Fram Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Myndasyrpa frá fögnuðu Hauka „Hvort við segjum núna titilinn eða tittlinginn, ég veit það ekki“ „Við vorum ógeðslega flottir í þessum tveimur leikjum“ „Þegar menn uppskera er það stórkostlegt“ „Ég er bara klökkur“ „Grimmd og gleði“ skilaði sannfærandi sigri Uppgjörið: Stjarnan - Fram 25-31 | Fram bikarmeistari Uppgjörið: Fram - Haukar 20-25 | Haukar bikarmeistarar í fyrsta sinn í átján ár Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ „Getum gengið stoltar frá borði“ Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Elliði Snær og Andri Már í sigurliðum Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Fyrrverandi þingmaður tekur við formennsku hjá FH Sjá meira