Fótbolti

Cristiano Ronaldo verður með Real Madrid á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo sést hér á æfingu með Real Madrid.
Cristiano Ronaldo sést hér á æfingu með Real Madrid. Mynd/AFP
Cristiano Ronaldo er í leikmannahópi Real Madrid fyrir leikinn á móti svissneska liðinu FC Zurich í Meistaradeildinni á morgun. Portúgalinn hefur ekki leikið með liðinu síðan 10. október vegna ökklameiðsla.

„Cristiano er í hópnum. Hann hefur litið betur út á síðustu æfingum en við verðum síðan að sjá til hvað hann spilar mikið," sagði Manuel Pellegrini, þjálfari Real Madrid.

Cristiano Ronaldo hefur spilað tvo leiki með Real Madrid í Meistaradeildinni á þessu tímabili og hann skoraði í þeim fjögur mörk. Real Madrid vann þá báða, 5-2 sigur á FC Zurich og 3-0 sigur á Marseille.

Real Madrid náði síðan ekki nema einu stigi út úr þeim tveimur leikjum sem liðið spilaði án hans en þeir voru báðir á móti AC Milan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×