Fótbolti

Messi ekki með gegn Inter - tæpur fyrir El Clásico

Ómar Þorgeirsson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. Nordic photos/AFP

Aðstandendur og stuðningsmenn Barcelona bíða nú á milli vonar og ótta með að heyra af meiðslum stjörnuleikmannsins Lionel Messi sem þurfti að yfirgefa leikvöllinn vegna meiðsla þegar um stundarfjórðungur lifði leiks í 1-1 jafntefli gegn Athletic Bilbao í gærkvöldi.

Samkvæmt heimildum spænska dagblaðsins Marca er þegar búið að afskrifa það að Messi verði með Barcelona í leiknum mikilvæga gegn Inter í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á þriðjudag.

Ekki liggur hins vegar ljóst fyrir hvort að Messi verði leikfær fyrir El Clásico-leikinn gegn Real Madrid á Nývangi um næstu helgi en knattspyrnustjórinn Pep Guardiola vildi segja sem minnst um málið.

„Það er erfitt að segja að svo stöddu þar sem Messi á eftir að gangast undir nánari skoðun. Þetta lýtur hins vegar ekki vel út við fyrstu athugun," sagði Guardiola við spænska fjölmiðla.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×