Fótbolti

Benitez: Ég er hundrað prósent viss um að við endum á topp 4

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rafael Benitez, stjóri Liverpool.
Rafael Benitez, stjóri Liverpool. Mynd/AFP
Rafael Benitez, stjóri Liverpool, var ánægður með frammistöðu síns liðs í 1-0 sigrinum á Debrecen í Ungverjalandi í kvöld. Fiorentina vann aftur á móti Lyon og því á Liverpool ekki lengur möguleika á að komast í 16 liða úrslitin.

„Við urðum bara að einbeita okkur af því að klára okkur verkefni og okkar verkefni var að vinna þennan leik. Við unnum en við gátum ekkert stjórnað því sem gerðist í hinum leiknum. Við spiluðum vel í dag og áttum fjögur til fimm mjög góð færi," sagði Rafael Benitez, stjóri Liverpool eftir leikinn

„Aðalatriðið núna er að einbeita sér að næsta leik og við eigum mikilvægan leik á sunnudaginn. Ég er hundrað prósent viss um að við endum með fjögurra efstu liðanna í úrvalsdeildinni. Liðið fer að spila vel þegar allir leikmennirnir skila sér úr meiðslum og þá fer þetta að ganga betur hjá okkur," sagði Benitez.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×