Fótbolti

Robben líklega áfram hjá Real Madrid - neitaði að fara til Tottenham

Ómar Þorgeirsson skrifar
Arjen Robben.
Arjen Robben. Nordic photos/AFP

Hollendingurinn Arjen Robben hefur líst því yfir að hann sé tilbúinn að berjast fyrir sæti í byrjunarliði Real Madrid á næstu leiktíð.

Eini möguleikinn á að hann yfirgefi herbúðir Madridinga sé ef að Meistaradeildarfélag komi kallandi en vængmaðurinn hefur sterklega verið orðaður við Tottenham í sumar.

„Með fullri virðingu fyrir Tottenham þá hef ég ákveðið að ganga ekki til liðs við félagið. Ég fer ekki frá Real Madrid nema Meistaradeildarbolti sé í boði einhvers staðar annars staðar.

En eins og staðan er núna er ég ákveðinn í því að reyna að sanna mig fyrir nýjum stjóra hjá Real Madrid og ég stefni á að eiga góða leiktíð með félaginu," segir Robben í samtali við breska götublaðið The Sun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×