Sport

Hellirigning setur enn strik í reikninginn á opna bandaríska

Ómar Þorgeirsson skrifar
Hætta þurfti við keppni á opna bandaríska meistaramótinu í tennis í dag vegna rigningar.
Hætta þurfti við keppni á opna bandaríska meistaramótinu í tennis í dag vegna rigningar. Nordic photos/AFP

Tilkynnt hefur verið að undanúrslitaleikjum í einliðaleik kvenna á opna bandaríska meistaramótinu í tennis sem fara áttu fram í kvöld hafa verið færðir til morguns vegna hellirigningar á keppnissvæðinu í New York í Bandaríkjunum.

Þá er talið líklegt að leikur Rafael Nadal og Fernando Gonzalez í átta-manna úrslitum einliðaleiks karla sem frestaðist í gær vegna úrhellis rigningar muni einnig vera spilaður á morgun en Spánverjinn Nadal hafði yfirhöndina þegar gera þurfti hlé á leiknum.

Búist er við því að úrslitaleikirnir á mótinu fari fram á mánudag fremur en sunnudag eins og til stóð.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×