Fótbolti

Pellegrini tekur við Real Madrid

Manuel Pellegrini.
Manuel Pellegrini. Nordic Photos / AFP

Manuel Pellegrini hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Real Madrid frá og með næsta keppnistímabili.

Þetta var tilkynnt í gærkvöldi en Pellegrini hefur síðustu fimm ár verið við stjórnvölinn hjá Villarreal.

Það var Florentino Perez sem gekk frá ráðningu Pellegrini á sínum fyrsta degi sem forseti Real Madrid en hann hefur reyndar áður gegnt því embætti.

Juande Ramos tók við starfi knattspyrnustjóra Real nú í vetur eftir að Bernd Schuster var sagt upp störfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×