Tónlist

Zeppelin heldur áfram

Robert Plant og Jimmy Page á endurkomutónleikum Led Zeppelin í London í desember 2007. Nordicphotos/getty
Robert Plant og Jimmy Page á endurkomutónleikum Led Zeppelin í London í desember 2007. Nordicphotos/getty
Umboðsmaður Jimmy Page hefur staðfest að Led Zeppelin muni á næstunni fara á tónleikaferð og taka upp nýja plötu án söngvarans Roberts Plant. Sögusagnir hafa verið á kreiki að sú yrði raunin og eftir að Plant tilkynnti í desember að hann tæki ekki þátt í frekari endurfundum hefur allt verið sett á fullt í leit að nýjum söngvara.

„John Paul Jones og Jimmy Page njóta þess að spila saman, Jason Bonham er frábær trommari svo af hverju ekki? Við þurfum bara að finna söngvara," segir umboðsmaðurinn Peter Mensch. Hann gefur fremur lítið fyrir þátttöku Plants í Led Zeppelin-endurkomunni árið 2007: „Þeir skemmtu sér frábærlega vel saman við æfingar fyrir tónleikana, þeir þrír, áður en Robert mætti til leiks."

Ýmsir þekktir söngvarar hafa verið orðaðir við söngvarastöðuna í Led Zeppelin, þar á meðal Chris Cornell úr Sound­garden og Audioslave og Steven Tyler úr Aerosmith. Umboðsmaðurinn Mensch vill lítið tjá sig um leitina að söngvaranum: „Þetta verður langt og erfitt ferli."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.