Fótbolti

David Villa hefur ekki áhuga á að spila fyrir Man. City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Villa er eftirsóttur meðal bestu og ríkustu félaga heims.
David Villa er eftirsóttur meðal bestu og ríkustu félaga heims. Mynd/GettyImages

Umboðsmaður spænska knattspyrnumannsins David Villa hefur komið fram og sagt að leikmaðurinn hafi ekki áhuga á að spila fyrir Manchester City.

Varaforseti Valencia, Fernando Gomez, talaði um það opinberlega í gær að viðræður væru í gangi á milli Valencia og Manchester City um kaup enska úrvalsdeildarliðsins á David Villa.

„Villa mun ekki yfirgefa Spán og hann er alveg harður á því,"sagði umboðsmaður David Villa, Jose Luis Tamargo, við spænska blaðið El Mundo Deportivo.

Villa er nýbúinn að gera sex ára samning (ágúst 2008) en vegna slæmrar fjárhagsstöðu liðsins er það nánast öruggt að hann muni verða seldur í sumar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×