Fótbolti

Ronaldo fljótur að opna markareikninginn hjá Real

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Real fagna marki Ronaldo í kvöld.
Leikmenn Real fagna marki Ronaldo í kvöld.

Stjörnum prýtt lið Real Madrid hóf leiktíðina á Spáni í kvöld er lið Deportivo la Coruna kom í heimsókn. Stjörnurnar stóðust fyrsta prófið og unnu góðan 3-2 sigur.

Raul kom Real yfir um miðjan fyrri hálfleik. Kiki jafnaði skömmu síðar fyrir Deportivo.

Cristiano Ronaldo opnaði svo markareikning sinn fyrir Real er hann skoraði úr vítaspyrnu á 35. mínútu. 2-1 fyrir Real í hálfleik.

Síðari hálfleikur var vart byrjaður er gamla brýnið Valeron jafnaði fyrir Deportivo á ný.

Þá spýtti Real Madrid í lófana á ný og Lassana Diarra tryggði þeim sigur með glæsilegu marki.

Fín byrjun hjá stjörnuliðinu sem verður svo sannarlega undir smásjánni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×