Fótbolti

Ronaldo: Ég get ekki spilað með Portúgal

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nordic Photos/AFP

Cristiano Ronaldo hefur væntanlega bundið enda á stríðið milli Real Madrid og portúgalska knattspyrnusambandsins með því að gefa það út að hann sé ekki orðinn nógu góður af meiðslum sínum til að spila með landsliðinu.

Forráðamenn Real Madrid brugðust illa við er Ronaldo var valinn í landsliðið fyrir umspilsleikina gegn Bosníu.

Real sagði leikmanninn ekki heilan heilsu en Portúgal vildi fá að reyna á það sjálft.

Ronaldo gaf það síðan út í dag að hann geti ekki spilað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×