Sport

Bolt ekki í sínu besta standi

Elvar Geir Magnússon skrifar
Usain Bolt.
Usain Bolt.

Spretthlauparinn Usain Bolt vonast til að tryggja sér heimsmeistaratitilinn í 100 metra hlaupi í Berlín. Bolt er 22 ára og vann Ólympíugullið í Peking í fyrra.

„Ég var í algjöru toppformi í fyrra og gerði fránæra hluti. Ég efast um að verða 100% standi í Berlín, en ef ég verð 95% þá mun ég keppa um gullið," sagði Bolt sem á heimsmetið í greininni en það er 9,69 sekúndur.

Bolt hitar upp fyrir heimsmeistaramótið um helgina þegar hann tekur þátt í Grand Prix móti í London.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×