Körfubolti

NBA: Clippers vann óvæntan sigur á Celtics

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það var lítil stemning hjá leikmönnum Boston eftir leikinn.
Það var lítil stemning hjá leikmönnum Boston eftir leikinn.

Mögnuð flautukarfa Baron Davis tryggði LA Clippers afar óvæntan sigur á Boston Celtics í nótt. Lokatölur 92-90 fyrir Clippers.

Leikmenn Celtics voru klaufar að vinna ekki leikinn en þeir leiddu með þrem stigum þegar innan við mínúta var eftir.

Flautukarfa Davis í lokin var svo tæp að dómarar urðu að horfa á körfuna á myndbandi til þess að fá úr því skorið að hann hefði sleppt boltanum í tíma.

Þetta var annar sigur Clippers í röð á Boston í Staples Center.

Úrslit næturinnar:

Detroit-Toronto  95-102

Houston-Cleveland  83-108

Indiana-Miami  80-114

San Antonio-NY Knicks  95-88

Dallas-Denver  104-96

Boston-LA Clippers  90-92

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×