Íslenski boltinn

Embla hætt í KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Embla Grétarsdóttir í leik með KR.
Embla Grétarsdóttir í leik með KR. Mynd/Anton

Embla Grétarsdóttir hefur tilkynnt forráðamönnum KR að hún sé hætt að spila með liðinu.

Þetta kom fram á heimasíðu KR seint í gærkvöldi en þar er einnig fullyrt að ekki sé ljóst með hvaða félagi hún muni læka næst.

Alls lék hún 241 leik með meistaraflokki KR, nú síðast í Lengjubikar kvenna á sunnudaginn. Alls á hún að baki 135 leiki í efstu deild með KR og hefur hún skoraði í þeim þrettán mörk. Hún hefur leikið tíu A-landsleiki á ferlinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×