Íslenski boltinn

Stjarnan enn með fullt hús stiga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stjarnan er á toppnum í Pepsi-deild kvenna.
Stjarnan er á toppnum í Pepsi-deild kvenna.

Stjarnan er enn með þriggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir 3-0 sigur á ÍR á heimavelli sínum í kvöld.

Valur er í öðru sæti deildarinnar með níu stig eftir þrjá leiki en liðið vann GRV í kvöld, 6-0. Þá vann Breiðablik 6-1 sigur á Keflavík á útivelli.

Fylkir og Breiðablik eru bæði með níu stig, rétt eins og Valur en Fylkir á leik til góða gegn Þór/KA á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×