Fótbolti

Barcelona í bleiku á næsta ári?

Verða Eiður og félagar í bleiku á næsta tímabili?
Verða Eiður og félagar í bleiku á næsta tímabili? NordicPhotos/GettyImages

Svo gæti farið að Barcelona léki í bleikum búningum á næstu leiktíð ef marka má frétt í El Mundo Deportivo um helgina.

Sagt er að Nike íþróttavöruframleiðandinn sé að undirbúa litríka varabúninga fyrir Katalóníuliðið á næstu leiktíð og að appelsínuguli búningurinn verði jafnvel tekinn fram á ný.

Bleiki liturinn hefur nokkrum sinnum áður sést í spænska boltanum og hafa lið eins og Sevilla, Espanyol og Alaves m.a. notað bleika varabúninga á undanförnum árum.

Barcelona verður í eldlínunni á Stöð 2 Sport í kvöld klukkan 18 þegar liðið mætir Sporting Gijon á Nou Camp.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×