Fótbolti

Spænska úrvalsdeildin: Góðir sigrar hjá Valencia og Villarreal

Ómar Þorgeirsson skrifar
Giuseppe Rossi skoraði fyrir Villarreal í kvöld.
Giuseppe Rossi skoraði fyrir Villarreal í kvöld. Nordic photos/AFP

Valencia og Villarreal hafa átt erfitt uppdráttar utan vallar á yfirstandandi keppnistímabili á Spáni og sitja bæði félög föst í skuldasúpu.

Valencia hefur hins vegar vegnað betur inni á vellinum en liðið skaust upp í fjórða sæti deildarinnar með 0-1 sigri gegn Malaga í kvöld.

David Narvarro skoraði sigurmark Valencia á 69. mínútu með skalla eftir sendingu frá Hernandez Pablo.

Þrátt fyrir að Villarreal sé í þrettánda sæti deildarinnar má vera að liðið sé nú að rétta úr kútnum en Villarreal vann 5-0 sigur gegn Tenerife á heimavelli sínum í dag.

Joseba Llorente skoraði tvö mörk fyrir Villarreal og Robert Pires, Ruben Garcia og Giuseppe Rossi sitt markið hver. Villarreal hefur nú unnið tvo leiki í röð í deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×