Fótbolti

Gerrard: Við vinnum bara Evrópudeildina í staðinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool.
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool. Mynd/AFP
Liverpool er úr leik í Meistaradeildinni þrátt fyrir 1-0 sigur á Debrecen í Ungverjalandi í kvöld. Fiorentina vann Lyon og fylgir því franska liðinu inn í 16 liða úrslitin.

„Þú uppskerð það sem þú átt skilið í fótbolta. Aðalvonbrigðin voru að þurfa að teysta á önnur lið," sagði Steven Gerrard fyrirliði Liverpool eftir að ljóst var að Liverpool-liðið væri úr leik í Meistaradeildinni.

„Meistaradeildarbikarinn er stærsti bikarinn sem liðið stefnir á í upphafi tímabils og þetta eru því mikil vonbrigði. Eina huggunin okkar er að við getum unnið Evrópudeildina í staðinn," sagði Gerrard.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×