Fótbolti

Carragher: Þetta er ekki búið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Jamie Carragher, leikmaður Liverpool, neitaði að gefast upp eftir jafnteflið í Lyon í kvöld þó svo Liverpool þurfi á stóru kraftaverki að halda til að komast í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar.

„Við trúum því enn að við getum komist áfram. Þetta er ekki búið en vissulega verður það gríðarlega erfitt. Við verðum bara að vinna okkar leiki og sjá hvað gerist," sagði Carragher brattur.

„Við höfum áður lent í erfiðum stöðum eins og 2005 er við urðum að vinna í Marseille. Það gekk eftir. Þetta var vissulega svekkjandi en þetta jafntefli er enginn dauðadómur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×