Íslenski boltinn

Stjörnukonur slógu KR út úr bikarnum í fyrsta sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björk Gunnarsdóttir skoraði tvö mörk gegn KR í kvöld.
Björk Gunnarsdóttir skoraði tvö mörk gegn KR í kvöld. Mynd/Anton

Stjarnan komst í kvöld í undanúrslit VISA-bikars kvenna eftir 3-0 sigur á KR á gervigrasinu í Garðabæ. Þetta er í fyrsta sinn sem Stjarnan vinnur KR í bikarkeppni kvenna.

Karen Sturludóttir kom Stjörnunni yfir í fyrri hálfleik og Björk Gunnarsdóttir innsiglaði síðan sigurinn með tveimur mörkum í blálokin.

KR hafði unnið alla fjóra bikarleiki liðanna fyrir kvöldið í kvöld þar af einu sinni í vítakeppni. Allir bikarleikir liðanna hafa farið fram í Garðabænum.

Þetta var þriðji sigur Stjörnuliðsins í bikarkeppninni í ár en markatala liðsins í VISA-bikarnum er 16-0.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×