Sport

Williams-systur unnu í tvíliðaleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Williams-systur með sigurlaunin sín.
Williams-systur með sigurlaunin sín. Nordic Photos / AFP

Venus og Serena Wiliams fögnuðu í nótt sigri í tvíliðaleik kvenna á opna ástralska meistaramótinu í tennis.

Þær báru sigurorð af Daniela Hantuchova frá Slóvakíu og Ai Sugiyama frá Japan í úrslitaviðureigninni, 6-3 og 6-3.

Serena keppir á morgun í úrslitum einliðaleiks kvenna þar sem hún etur kappi við Danira Safina frá Rússlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×