Fótbolti

Spænska blaðið El Mundo Deportivo: Zlatan byrjar í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic spilar hinn mikilvæga leik í kvöld.
Zlatan Ibrahimovic spilar hinn mikilvæga leik í kvöld. Mynd/AFP
Samkvæmt spænska blaðinu El Mundo Deportivo verður Zlatan Ibrahimovic í byrjunarliði Barcelona á móti gömlu félögunum hans í Inter í mikilvægum leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Barcelona getur dottið úr keppni tapi liðið leiknum í kvöld.

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, er samkvæmt sömu heimildum ekki búinn að ákveða það hvort hann notar Lionel Messi í leiknum en Messi hefur einnig verið að glíma við meiðsli.

Zlatan Ibrahimovic hefur misst af tveimur síðustu leikjum Barcelona og það voru um helgina ekki taldar miklar líkur vera á því að hann myndi ná þessum leik. Hann var samkvæmt spænskum fjölmiðlum í kapphlaupi um að ná leiknum á móti Real Madrid á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×