Fótbolti

Barcelona skoraði fjögur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Thierry Henry og Zlatan Ibrahimovic fagna marki þess fyrnefnda í kvöld.
Thierry Henry og Zlatan Ibrahimovic fagna marki þess fyrnefnda í kvöld. Nordic Photos / AFP

Barcelona vann 4-2 sigur á Real Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld og er því með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar.

Pedro kom Barcelona yfir á elleftu mínútu leiksins en Jose Nunes jafnaði metin fyrir gestina skömmu síðar.

Pedro og Thierry Henry náðu að skora með þriggja mínútna millibili í lok hálfleiksins og Lionel Messi bætti við fjórða markinu úr vítaspyrnu á 87. mínútu.

Alhassane Keita minnkaði svo muninn með marki á lokamínútu leiksins.

Leikur Real Madrid og Atletico Madrid er nú nýhafinn en með sigri minnkar Real Madrid forystu Barcelona aftur í eitt stig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×