Fótbolti

Beckham aftur til Real Madrid?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Talið er að Real Madrid væri til í að kaupa upp samning Beckhams við LA Galaxy.
Talið er að Real Madrid væri til í að kaupa upp samning Beckhams við LA Galaxy. Nordic Photos/Getty Images

Það eru margar furðulegar sögusagnir í gangi hjá Real Madrid þessa dagana enda forsetakjör framundan. Þá reyna frambjóðendur einmitt að kaupa sér atkvæði með því að lofa að kaupa þennan og hinn.

Gamli forsetinn Florentino Perez er kominn aftur í framboð og er talað um að ef hann nái völdum á ný gætu þeir David Beckham og Roberto Carlos snúið aftur til félagsins.

Það var einmitt Perez sem keypti Beckham frá Man. Utd á sínum tíma og talið er líklegt að hann vinni forsetakjörið.

Ramon Calderon, sem er líka fyrrum forseti Real, segir aftur á móti að það sé klárt að Cristiano Ronaldo komi til Real næsta sumar. Megi þakka það hans vinnu síðustu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×