Fótbolti

Toure ekki spenntur fyrir ensku úrvalsdeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Miðjumaðurinn Yaya Toure hefur verið sterklega orðaður við lið í ensku úrvalsdeildinni síðustu vikur. Þá sérstaklega Man. City.

Toure er ósáttur í herbúðum Barcelona þar sem hann fær lítið að spila. Umboðsmaður hans segir að Toure muni reyna að finna sér nýtt félag.

Sjálfur hefur Toure verið að spara yfirlýsingarnar og einbeitir sér að því að komast aftur í liðið hjá Barca.

Síðast er hann tjáði sig sagðist hann ætla að berjast fyrir sæti sínu og væri ekki spenntur fyrir því að flytja til Englands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×