Sport

Nadal og Federer í fjórðungsúrslit á Indian Wells

Nadal er stigahæsti tennisleikari heims.
Nadal er stigahæsti tennisleikari heims. Nordic Photos/Getty Images

Rafael Nadal tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitum á Indian Wells mótinu í tennis sem haldið er í Kaliforníu með naumum sigri á David Nalbandian í hörkuleik.

Spánverjinn sigraði 3-6, 7-6 og 6-0 og mætir Argentínumanninum Juan Martin Del Potro í næstu umferð.

Roger Federer er einnig kominn áfram á mótinu eftir 6-3, 5-7 og 6-2 sigur á Chilemanninum Fernando Gonzalez. Federer, sem vann mótið þrjú ár í röð á árunum 2004-2006, mætir Spánverjanum Fernando Verdasco í átta manna úrslitum í kvöld.

Novak Djokivic og Andy Roddick og Andy Murray eru líka komnir áfram á mótinu, en Djokivic á titil að verja á Kaliforníumótinu eftir sigur á Mardy Fish í úrslitum í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×