Fótbolti

Ramos hissa á lélegri frumraun Faubert

NordicPhotos/GettyImages

Juande Ramos, þjálfari Real Madrid, var ekki sérlega ánægður með leik sinna manna í gær þegar lið hans lagði Racing 1-0 í spænsku deildinni.

Það var ekki síst lánsmaðurinn Julien Faubert sem fékk glósur frá þjálfaranum eftir leikinn, en hann spilaði 30 mínútur eftir að hafa komið frá West Ham í janúarglugganum - í einhverjum óvæntustu viðskiptum gluggans.

"Hann sýndi ekki neitt, frekar en allt liðið. Það borgar sig ekki að tala um það, enda var þetta bara fyrsti leikurinn hans," sagði Ramos.

Faubert náði sér aldrei á strik hjá West Ham þar sem hann hóf ferilinn á því að meiðast illa og kom ekki við sögu í marga mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×