Fótbolti

Pedro búinn að skrifa undir atvinnumannasamning

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pedro Rodriguez skoraði fjögur mörk á undirbúningstímabilinu og annað tveggja marka liðsins í 2-1 sigri á Athletic Bilbao um helgina.
Pedro Rodriguez skoraði fjögur mörk á undirbúningstímabilinu og annað tveggja marka liðsins í 2-1 sigri á Athletic Bilbao um helgina. Nordic Photos / AFP

Pedro Rodriguez er nú orðinn fullgildur meðlimur aðalliðs Barcelona eftir að hann skrifaði undir atvinnumannasamning hjá félaginu í dag.

Pep Guardiola, stjóri Barcelona, hafði greint frá því í æfingaferð liðsiins í Bandaríkjunum að hann vildi fá Pedro í aðalliðshópinn. Hann hefur undanfarin ár spilað með varaliðinu en lék sinn fyrsta leik í aðalliðinu á síðasta tímabili.

Meðal annars kom hann inn á sem varamaður í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor, gegn Manchester United.

Pedro er 22 ára gamall og samdi við Barcelona til loka tímabilsins 2014. Það er klásúla í hans samningi sem heimilar honum að fara annað berist Barcelona tilboð upp á 75 milljónir evra.

Hann gekk í raðir Barcelona frá CD San Isidro árið 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×