Fótbolti

Xabi Alonso: Gott að fá jólafrí á nýjan leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Xabi Alonso, miðjumaður Real Madrid.
Xabi Alonso, miðjumaður Real Madrid. Mynd/AFP

Xabi Alonso, miðjumaður Real Madrid og fyrrum leikmaður Liverpool, fær nú að kynnast því að fá jólafrí frá fótboltanum eftir að hafa spilað í ensku úrvalsdeildinni síðustu fimm ár þar sem leikjaálagið er mikið yfir hátíðirnar.

"Það er gott fyrir fótboltann að fá smá jólafrí. Þetta hlé á deildinni kemur sér líka vel fyrir leikmenn því þetta er HM ár og margir fá því lítið frí næsta sumar. Það er gott að fá jólafrí á nýjan leik," sagði Xabi Alonso við spænska blaðið AS.

Alonso kom til Liverpool frá Real Sociedad árið 2004 og fékk því síðast jólafrí um áramótin 2003 til 2004 eða fyrir sex árum síðan.

Real Madrid spilar næst á móti Osasuna á útivelli 3. janúar næstkomandi en liðið er eins og er tveimur stigum á eftir toppliði Barcelona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×