Fótbolti

Capello heldur ekki vatni yfir Messi

Messi hefur verið stórkostlegur með Barcelona í vetur
Messi hefur verið stórkostlegur með Barcelona í vetur AFP

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur miklar mætur á argentínska undrabarninu Lionel Messi hjá Barcelona.

Spænska blaðið Sport hefur eftir Ítalanum að Messi sé eini knattspyrnumaðurinn í Argentínu sem kallast geti arftaki Diego Maradona.

"Messi gerir ótrúlega hluti á knattspyrnuvellinum og er einstakur leikmaður. Hann er arftaki Maradona," sagði Capello.

Hann segir Barcelona-manninn betri en Cristiano Ronaldo hjá Manchester United og Arjen Robben hjá Real Madrid.

"Ronaldo og Robben eru frábærir leikmenn, en enginn leikmaður í heiminum hefur yfir hæfileikum Messi að ráða."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×