Fótbolti

Aguero: Við getum klárlega unnið Real Madrid

Ómar Þorgeirsson skrifar
Sergio Ramos og Sergio Aguero eigast við í leik liðanna á Santiago Bernabeu-leikvanginum á síðusta tímabilið.
Sergio Ramos og Sergio Aguero eigast við í leik liðanna á Santiago Bernabeu-leikvanginum á síðusta tímabilið. Nordic photos/APF

Framherjinn Sergio Aguero hjá Atletico Madrid telur að staða liðsins í spænsku deildinni hafi ekkert að gera þá staðreynd að liðið geti unnið granna sína í Real Madrid þegar liðin mætast á Vicente Calderon-leikvanginum á morgun.

Atletico Madrid er sem stendur í fallsæti í spænsku úrvalsdeildinni en sýndi hvað býr í liðinu í 2-2 jafnteflisleiknum gegn Chelsea á Meistaradeildinni í vikunni þar sem Aguero skoraði einmitt bæði mörk liðsins.

„Við erum óneitanlega í erfiðri stöðu en þurfum að bera höfuð hátt og halda áfram. Við vitum að þetta verður erfiður leikur gegn Real Madrid en vitum jafnframt að þetta er leikur sem við getum klárlega unnið. Við þurfum nauðsynlega á stigunum að halda og stuðningsmenn þurfa einnig að sjá að við séum að leggja okkur fram," segir Aguero í viðtali á opinberri heimasíðu liðsins.

Leikur Atletico Madrid og Real Madrid verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á morgun kl. 21 en útsendingin hefst kl. 20.50.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×