Fótbolti

Fabregas: Erum ekki komnir áfram

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fabregas fagnar marki í kvöld.
Fabregas fagnar marki í kvöld.

Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, var jarðbundinn eftir öruggan sigur Arsenal í Meistaradeildinni í kvöld. Sigurinn þýðir að Arsenal er aðeins stigi frá sæti í sextán liða úrslitunum.

„Þetta er ekki alveg komið og við verðum að halda áfram þar til við höfum fengið farseðilinn í hendurnar. Þó svo við hefðum klárað dæmið þá myndum við samt vilja vinna báða leikina sem eftir eru," sagði Fabregas í kvöld.

„Tímabilið er bara rétt að byrja, við erum ekki búnir að vinna neitt. Við hættum ekki fyrr en í lokin. Við viljum vinna og ef við vinnum einhvern bikar í lok tímabils þá samþykkjum við að þetta hafi verið gott tímabil. Annars ekki."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×