Fótbolti

Chygrynsky: Er í skýjunum með að vera kominn til Barcelona

Ómar Þorgeirsson skrifar
Dymytro Chygrynsky í leik með Shakhtar Donetsk gegn Barcelona á dögunum.
Dymytro Chygrynsky í leik með Shakhtar Donetsk gegn Barcelona á dögunum. Nordic photos/AFP

Úkraínski varnarmaðurinn Dymytro Chygrynsky er formlega genginn í raðir Meistaradeildarmeistara Barcelona eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá spænska félaginu í morgun.

Barcelona greiðir Shakhtar Donetsk 22 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er hæst ánægður með félagsskiptin.

„Það var ekki auðvelt að yfirgefa Shakhtar en að sama skapi ekki erfitt að velja Barcelona. Ég er mjög þakklátur fyrir að fá tækifæri til þess að ganga í raðir félags á borð við Barcelona og ég vona að ég geti tekið ríkan þátt í vonandi farsælli framtíð félagsins," segir Chygrynsky í samtali við Barca TV.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×