Fótbolti

Markaveisla hjá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Henry og Eto´o fóru á kostum í kvöld.
Henry og Eto´o fóru á kostum í kvöld. Nordic Photos/getty Images

Leikmenn Barcelona fóru algjörlega á kostum í kvöld er þeir pökkuðu Malaga-mönnum saman og unnu stórsigur, 6-0.

Staðan í leikhléi 4-0 og Barca bætti við tveim mörkum í síðari hálfleik.

Samuel Eto´o með tvö mörk fyrir Barca. Hin mörkin skoruðu Xavi, Messi, Henry og Alves.

Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðasta hálftímann fyrir Barcelona.

Börsungar á toppi deildarinnar með 69 stig og Real Madrid í öðru sæti með 63 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×