Fótbolti

Guti missir af El Clasico á laugardaginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guti fagnar marki í sigrinum á Getafe um síðustu helgi.
Guti fagnar marki í sigrinum á Getafe um síðustu helgi. Mynd/GettyImages

Það verður enginn Guti í liði Real Madrid á móti Barcelona í El Clasico á laugardaginn. Guti tognaði illa á ökkla á æfingu og gengur nú um Madridarborg á hækjum.

Guti lenti í samstuði við varamarkvörðinn Jerzy Dudek á æfingunni með þeim afleiðingum að hann tognaði illa á ökkla og þurfti að fara upp á sjúkrahús til meðhöndlunar.

Guti hefur ekki fengið alltof mörg tækifæri hjá Juande Ramos þjálfara Real Madrid en flestir bjuggust við því að hann fengi að spila á móti Barcelona eftir að hann skoraði flott mark beint úr aukaspyrnu í 3-2 sigrinum á Getafe um síðustu helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×