Fótbolti

Jafntefli í Íslendingaslagnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Örn Bjarnason í leik með Brann.
Ólafur Örn Bjarnason í leik með Brann. Nordic Photos / AFP

Brann og Viking skildu jöfn í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, 1-1.

Ólafur Örn Bjarnason og Birkir Már Sævarsson voru báðir í byrjunarliði Brann í kvöld en Kristján Örn Sigurðsson var ekki í leikmannahópi liðsins. Gylfi Einarsson kom inn á sem varamaður.

Indriði Sigurðsson og Birkir Bjarnason léku báðir allan leikinn í liði Viking sem er í sjöunda sæti deildarinnar 32 stig. Brann er í fimmta sætinu með 37 stig.

Þá var einnig leikið í sænsku B-deildinni í gær. Gunnar Þór Gunnarsson lék allan leikinn er Norrköping gerði markalaust jafntefli við Trollhättan. Stefán Þór Þórðarson var ekki í leikmannahópi Norrköping.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×