Di Canio: Guttarnir hafa það of gott 31. mars 2009 17:10 Di Canio hafði vilja og hungur á við heilt knattspyrnulið á dögum sínum sem leikmaður Nordic Photos/Getty Images
Ítalska knattspyrnugoðsögnin Paulo di Canio sem áður lék m.a. með West Ham á Englandi, segir að ungir knattspyrnumenn í dag hafi það allt of gott. Di Canio tekur undir það sem Frank Lampard sagði í blaðaviðtali fyrir skömmu þegar hann sagði unga atvinnumenn í dag skorta aga og hungur. Hann minntist þess þegar ungir leikmenn voru látnir þrífa skó eldri leikmanna til að halda þeim niðri á jörðinni. Di Canio er sammála. "Þetta hefur mikið með peningana í boltanum að gera," sagði Di Canio í samtali við tímaritið 4-4-2. "Ungir leikmenn missa kannski drifkraftinn þegar þeir eru komnir með milljónir í vikulaun og það er eðlilegt. Þegar menn eru 18 og 19 ára gamlir, hafa þeir nóg á sinni könnu hvort sem þeir eru með há laun eða ekki," sagði Di Canio. Hann segir að frægðarljóminn yfir knattspyrnumönnum sé einnig að gera mönnum erfitt fyrir á Ítalíu. "Það þykir skrítið ef þessir menn eru ekki úti að skemmta sér klukkan tvö á nóttinni, því þessir menn eru partur af frægðarelítunni. Svona er líf nútímaknattspyrnumannsins í kjölfar allrar þessarar fjölmiðlaathygli. Þetta var ekki svona þegar ég var að spila," sagði Di Canio.
Ítalski boltinn Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Körfubolti Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Handbolti Fleiri fréttir Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Sjá meira