Sport

Fékk „óvart" ólöglegt lyf

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Manny Ramirez.
Manny Ramirez. Nordic Photos/Getty Images

Hafnaboltastjarnan Manny Ramirez hefur verið dæmdur í 50 leikja bann fyrir að nota ólögleg lyf. Hann er enn einn hafnaboltaleikmaðurinn sem fellur á lyfjaprófi.

Þetta langa bann mun kosta Ramirez 5 milljónir punda sem er 31 prósent af launum hans.

Ramirez var með svör á reiðum höndum eftir að hann féll á prófinu.

„Læknir gaf mér lyf, ekki stera, sem hann hélt að væru í lagi en því miður þá var það á bannlista," sagði Ramirez.

„Mistökin eru samt á mína ábyrgð. Mér hefur verið ráðlagt að tjá mig ekki frekar."

Það er leikið afar þétt í hafnaboltanum í Bandaríkjunum og Ramirez verður mættur aftur á völlinn þann 3. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×