Fótbolti

Birkir skoraði tvö fyrir Viking

Elvar Geir Magnússon skrifar
Birkir Bjarnason í landsleik.
Birkir Bjarnason í landsleik.

Birkir Bjarnason var á skotskónum fyrir Viking frá Stafangri í dag. Hann skoraði tvívegis fyrir liðið þegar það lagði Lilleström 4-2 í norska boltanum.

Birkir skoraði fyrsta mark leiksins og kom síðan Viking í 3-1 stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Viking er í sjöunda sæti norsku deildarinnar en Lilleström í því tólfta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×