Íslenski boltinn

Umfjöllun: Valur hirti toppsætið af Fylki

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristín Ýr Bjarnadóttir, fyrir miðju.
Kristín Ýr Bjarnadóttir, fyrir miðju. Mynd/Stefán
Valur skellti sér á topp Pepsi-deildar kvenna í kvöld með 3-2 sigri á Fylki í Árbænum. Það mátti reyndar litlu muna að heimamenn næðu að jafna metin eftir að hafa lent 3-0 undir.

Valur komst í 3-0 í leiknum með tveimur mörkum frá Hallberu Guðnýju Gísladóttur og einu frá Kristínu Ýri Bjarnadóttur. Valur hafði mikla yfirburði í leiknum en það snerist skyndilega við þegar um hálftími var til leiksloka.

Þá skoraði Anna Björg Björnsdóttir tvö mörk á fimm mínútna kafla og kom Fylki inn í leikinn á ný. En nær komust Árbæingar ekki og töpuðu þar með sínum fyrsta leik á tímabilinu.

Fyrsta mark leiksins kom á 17. mínútu þegar að Hallbera Guðný fékk boltann á vinstri kantinum. Hún gerði sig líklega til að gefa boltann fyrir en fann ekki samherja. Hún skaut því sjálf að markinu og Björk Björnsdóttir, markvörður Fylkis, missti boltann undir sig á nærstönginni.

Tæpum tíu mínútum síðar dró aftur til tíðinda. Dagný Brynjarsdóttir tók sprett upp miðjan völlinn og átti laglegan samleik við Kristínu Ýri.Það lauk með því að Kristín átti glæsilegt skot að marki sem hafnaði í slánni og inn. Björk markvörður átti ekki möguleika.

Fylkir komst varla í sókn fyrsta hálftímann og Valur var nálægt því að komast þremur mörkum yfir þegar að Dóra María Lárusdóttir átti hættulegt skot að marki úr aukaspyrnu. Boltinn fór hárfínt yfir mark heimamanna.

En á 33. mínútu fékk Fylkir sitt langbesta færi. Anna Björg Björnsdóttir lék laglega í gegnum vörn Valsmanna. Hún fékk nægan tíma til að athafna sig en lét verja frá sér úr upplögðu færi.

Ekki var síðra færið sem Hallbera Guðný fékk í næstu sókn Vals en hún hitti ekki markið þegar hún var komin ein í gegn.

Staðan því 2-0 í hálfleik en nokkuð jafnræði var með liðunum í upphafi þess síðari. Þar til á 57. mínútu að Hallbera Guðný fékk aftur boltann á vinstri kantinum, lék laglega á Tinnu Bergþórsdóttur, varnarmann Fylkis, og skoraði með laglegu skoti sitt annað mark í leiknum.

En þá skyndilega vöknuðu heimamenn til lífsins og náði að klóra í bakkann með marki eftir laglega skyndisókn. Anna Björg hóf sóknina og gaf á varamanninn Kristrúnu Kristinsdóttur. Hún náði að leika á varnarmann Vals og skilaði boltanum aftur á Önnu sem skoraði með hnitmiðuðu skoti.

Og hún var ekki hætt. Laufey Björnsdóttir átti góða stungusendingu inn fyrir vörn Vals sem Anna Björg náði að elta uppi og senda boltann yfir Maríu Ágústsdóttur í marki Valsmanna. Skyndilega voru heimamenn búnir að koma sér inn í leikinn með tveimur mörkum á fimm mínútum.

Fylkismenn reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin eftir þetta og voru mikið með boltann. En þeim gekk illa að skapa sér hættuleg færi. Valur náði þar með að verja forskot sig og ná sér þar með í dýrmæt þrjú stig í toppbaráttu deildarinnar.

Fylkir - Valur 2-3

0-1 Hallbera Guðný Gísladóttir (17.)

0-2 Kristín Ýr Bjarnadóttir (26.)

0-3 Hallbera Guðný Gísladóttir (57.)

1-3 Anna Björg Björnsdóttir (61.)

2-3 Anna Björg Björnsdóttir (66.)

Fylkisvöllur. Áhorfendur: 430.

Dómari: Andri Vigfússon.

Skot (á mark): 6-11 (3-4)

Varin skot: Björk 1 - María Björg 1.

Horn: 3-6

Aukaspyrnur fengnar: 13-7

Rangstöður: 4-0

Fylkir (4-4-2):

Björk Björnsdóttir

Tinna B. Bergþórsdóttir

Ragna Björg Einarsdóttir

Lidija Stojkanovic

María Kristjánsdóttir

Fjolla Shala

(46. Kristrún Kristinsdóttir)

Laufey Björnsdóttir

Danka Podovac

Anna Sigurðardóttir

(77. Elsa Petra Björnsdóttir)

Anna Björg Björnsdóttir

Rúna Sif Stefánsdóttir

(51. Ruth Þórðar Þórðardóttir)

Valur (4-3-3):

María Björg Ágústsdóttir

Sif Atladóttir

Pála Marie Einarsdóttir

Katrín Jónsdóttir

Björg Ásta Þórðardóttir

Dóra María Lárusdóttir

Helga Sjöfn Jóhannsdóttir

Kristín Ýr Bjarnadóttir

(72. Anna Garðarsdóttir)

Rakel Logadóttir

(87. Embla Sigríður Grétarsdóttir)

Dagný Brynjarsdóttir

(62. Guðný Petrína Þórðardóttir)

Hallbera Guðný Gísladóttir

Tengdar fréttir

Freyr: Gott að komast á toppinn

Freyr Alexandersson, þjálfari Vals, var hæstánægður með sigur síns liðs á Fylki í toppslag Pepsi-deildar kvenna í kvöld.

Anna Björg: Hrikalega svekkjandi

Anna Björg Björnsdóttir, leikmaður Fylkis, leyndi ekki vonbrigðum sínum með að hafa tapað fyrsta leik sumarsins er liðið tapaði fyrir Val í kvöld, 3-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×