Sport

Williams í fjórðu umferðina

NordicPhotos/GettyImages

Serene Williams hefur oft leikið betur en í dag en það nægði henni þó til sigurs gegn kínversku stúlkunni Peng Shuai í þriðju umferðinni á opna ástralska meistaramótinu í tennis.

Bandaríska stúlkan hafði sigur 6-1 og 6-4 en ekki er hægt að segja að hún hafi sýnt neina meistaratakta gegn lægra skrifuðum andstæðingi sínum.

Elena Dementieva er líka komin áfram eftir 7-6 og 6-4 sigur á Stamantha Stosur og þar með eru sex rússneskar stúlkur komnar í 16-manna úrslit.

Ein þeirra er Svetlana Bondarenko sem lagði Alona Bondarenko 7-6 (9-7) og 6-4 og kínverska stúlkan Jie Zheng tryggði sig áfram með sigri á yngri Bodarenko-systurinni Katerynu, 6-2 og 6-2. Bodarenko-systur eru frá Úkraínu.

Carla Suarez Navarro frá Spáni, sem lagði Venus Williams í síðustu umferð, lagði löndu sína Maria Jose Martinez Sanchez og mætir annari löndu sinni Madina Garrigues í 16-manna úrslitum.

Garrigues lagði ítölsku stúlkuna Flavia Pennetta 6-4 og 6-1.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×