Viðskipti innlent

Færeyingar hreyfast nær einir á hlutabréfamarkaði

Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka hækkaði um 0,83 prósent í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa færeyska flugfélagsins Atlantic Airways um 1,22 prósent.

Heildarveltan nam 11,4 milljónum króna. Munar þar mestu um tæpa 9,4 milljóna króna veltu með bréf stoðtækjafyrirtækisins Össurar.

Önnur hreyfing var ekki á hlutabréfamarkaði.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 0,5 prósent og endaði í 261 stigi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×