Sport

Federer lagði Safin

NordicPhotos/GettyImages

Roger Federer tryggði sér í dag sæti í fjórðu umferðinni á opna ástralska meistaramótinu í tennis þegar hann lagði annan fyrrum sigurvegara mótsins, Marat Safin.

Federer vann sigur 6-3 6-2 7-6 (7-5) og mætir Tomas Berdych í næstu umferð.

Novak Djokovic, sem á titil að verja á mótinu, lenti í hörkurimmu gegn Amer Delic, en vann 6-2 4-6 6-3 7-6 (7-4).

Andy Roddick er líka kominn áfram eftir sigur á Fabrice Santoro í þremur settum 6-3 6-4 6-2 og mætir Tommy Robredo í fjórðu umferðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×