Körfubolti

Fingurbrotinn Kobe skoraði 42 stig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kobe Bryant í leiknum í nótt.
Kobe Bryant í leiknum í nótt. Mynd/AP
Kobe Bryant skoraði 42 stig fyrir Lakers er liðið vann sigur á Chicago, 96-87, í NBA-deildinni í nótt.

Þetta var tólfti sigur Lakers í síðustu þrettán leikjum liðsins. Gengi Chicago hefur að sama skapi ekki verið gott. Þetta var ellefta tap liðsins í síðustu þrettán leikjum þess.

Bryant átti stórbrotinn leik þó svo að hann hafi spilað með spelku á brotnum vísifingri á hægri hönd.

„Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert," sagði Kobe eftir leikinn. „Ég hef spilað með auman ökkla, brotna hnúa og svo framvegis."

Þetta gekk þó ekki vandræðalaust fyrir sig hjá honum en hann tapaði alls átta boltum í leiknum. En hann byrjaði frábærlega og skoraði 20 stig í fyrsta leikhlutanum.

Andrew Bynum skoraði ellefu stig fyrir Lakers og Pau Gasol tók sextán fráköst í leiknum.

Hjá Chicago skoraði Luol Deng 21 stig rétt eins og Derrick Rose. Joakim Noah var með ellefu stig og 20 fráköst.

Miami vann Toronto, 115-95. Michael Beasley jafnaði persónulegt met í leiknum og skoraði 28 stig. Dwyane Wade var með nítján stig en hvíldi allan fjórða leikhluta.

Cleveland vann New Jersey, 99-89. LeBron James skoraði 23 stig, tók sex fráköst og gaf sjö stoðsendingar.

Charlotte vann New York, 94-87. Stephen Jackson skoraði 24 stig fyrir Charlotte.

Houston vann Detroit, 107-96. Tracy McGrady lék sinn fyrsta leik á tímabilinu með Houston en þeir Luis Scola og Aaron Brooks voru stigahæstir með 23 stig hvor.

Phoenix vann San Antonio, 116-104. Amare Stoudemire skoraði 28 stig og tók fjórtán fráköst í leiknum. Varamaðurinn Goran Dragic átti góðan leik og skoraði átján stig sem er persónulegt met. Phoenix hefur unnið alla níu leiki sína á heimavelli til þessa.

Portland vann Sacramento, 95-88, þar sem LaMarcus Aldridge skoraði mikilvæga körfu undir lok leiksins þó svo að hann hafi átt við ökklameiðsli að stríða. Portland hafði tapað síðustu tveimur leikjum fyrir þennan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×