Fótbolti

Við erum herramenn hjá Real Madrid

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Nýtt Galactico-tímabil í uppsiglingu. Kaká er næstur inn.
Nýtt Galactico-tímabil í uppsiglingu. Kaká er næstur inn. Nordicphotos/GettyImages
Florentino Perez, forseti Real Madrid, vill ekki eignast neina óvini í nýjasta verkefninu sínu. Það er að byggja upp nýtt Galactico-veldi á Santiago Bernabeau.

„Zidane var ódýr leikmaður (innsk. 42 milljónir punda) þar sem koma hans gaf klúbbnum gríðarlegar auglýsingatekjur sem og aðra leikmenn sem gerðu liðið betri. Þetta er módel sem nærist á sjálfu sér. Við höfum ekki endilega ríka einstaklinga til að dæla peningum í klúbbinn,“ segir Perez um stefnuna.

Kaká er við það að ganga frá samningi sínum við Real, Valencia fær tilboð í næstu viku í David Villa, en næstir á dagskránni eru Franck Ribéry og Xabi Alonso. Auk Ronaldo auðvitað. Það er Perez mikilvægt að hann haldi vinskap við félögin sem hann semur við.

„Ég mun tala við Sir Alex Ferguson og David Gill til að byggja brýr,“ segir Perez en samband hans við United er erfitt eins og er á flestra vitneskju.

„Auðvitað viljum við bestu leikmennina til okkar, en bara ef félögin vilja selja þá. Spurður hvern sem er. Ég á í góðu sambandi við alla sem við höfum keypt af og það er mjög mikilvægt fyrir mér að það haldist þannig. Ég virði aðra klúbba og við erum herramenn hjá Real Madrid."

„Ronaldo eða hver sem er getur komið ef félagið vill selja. Að neyða samninga í gegn er ekki okkar stíll. Ef einhver hefur hagað sér þannig áður en ég tók við vil ég biðjast afsökunar og ég lofa því að það gerist ekki aftur“ sagði Perez, auðmjúkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×